| Minningarathöfn |
|
|
|
| Skrifað af: Jón Már Guðmundsson |
| Þriðjudagur, 22. júní 2010 00:56 |
|
Tekið af www.sniglar.is Mikið skarð er fyrir skildi. Stofnfélagi og frumkvöðull Salvation Riders MC Iceland, Anne Marie Reinholdtsen lést 19. júní í mótorhjólaslysi. Anne Marie var á leiðinni til Hólmavíkur til þess að taka þátt í kvöldvöku á laugardagskvöldinu og mótorhjólamessu sem fram fór á sunnudeginum. Mótorhjólamessan á Hólmavík var ekki hvað síst að hennar frumkvæði og það var fyrir hennar atorku og þrautseigju að hún varð að veruleika. Messan féll ekki niður, þrátt fyrir fráfall hennar enda hefði það verið í hennar anda að halda áætlun og láta ekkert stöðva framgang Guðsríkisins. Stundin í Hólmavíkurkirkju var helguð minningu hennar. Anne Marie var stoltur félagi Salvation Riders, lagði sig alla fram um starfsemi klúbbsins og bar öll merki þess (Full Member). Hennar verður sárt saknað en minning hennar mun ávallt lifa meðal Salvation Riders á Íslandi. Þriðjudaginn 22. júní verður minningarstund í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 18 og eru allt mótorhjólafólk velkomið. Það væri vel við hæfi að sjá heiðursvörð mótorhjólamanna í kirkjunni og utan hennar. Við hvetjum því alla sem möguleika hafa að koma á hjólum til athafnarinnar ! Hjörtur Arnar Óskarsson, |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 24. júní 2010 17:10 |


















