Það styttist í

Ekkert framundan í augnablikinu

Á döfinni

There are currently no events to display.
mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag2
mod_vvisit_counterÍ gær102
mod_vvisit_counterÍ þessari viku525
mod_vvisit_counterÍ síðustu viku601
mod_vvisit_counterÞessi mánuður831
mod_vvisit_counterSíðasti mánuður3283
mod_vvisit_counterFrá upphafi69060

We have: 1 guests online
IP talan þín er: 38.107.179.230
Í dag er: 07 feb, 2012

Deila á Facebook

Deildu síðunni með vinum
Fréttir
Gleðilegt hjólaár félagar og annað hjólafólk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir H. Ásgeirsson   
Miðvikudagur, 18. janúar 2012 20:47
Nú er nýtt ár gengið í garð. Þetta er merkisár fyrir okkur Sturlunga því í ár eigum við fimm ára afmæli. Nú þegar er hafinn feikna undirbúningur að skemmtilegu hjólaári með skipulagningu lengri og skemmri hjólatúra auk annarskonar skemmtanahalds. Við ætlum aldeilis að bæta okkur upp frekar slakt hjólaár frá því í fyrra enda lofa veðurguðirnir okkur miklu betra veðri. Svo eitthvað sé nefnt þá verða Vestfirðirnir lagðir auk þess sem suð-austurlandið verður þrælkannað, vonandi með viðkomu út í eyjum. Þá er í undirbúningi léttar tónleikaveislur svo það er við öllu að búast á komandi mánuðum. Í vetur höfum við hist öll þriðjudagskvöld auk þess að kíkja öðru hverju í bauk um helgar. Sturlungar eru því vel stemmdir fyrir komandi mánuði og þó úti sé snjór og þæfingur horfum við björtum augum til sumarsins og hlökkum til mikils burrrrrr með hækkandi sól.   Sjáumst hress, Kv. Gústi
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 18. janúar 2012 20:52
 
Sturlungadagurinn 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Sunnudagur, 05. júní 2011 00:53

Þá er komið að því....

....Við höldum Sturlungadaginn 2011 hátíðlegan þann 11. júní n.k. Við ætlum að taka rúnt eitthvað út fyrir bæjarmörkin en veðrið mun væntanlega stýra því hvert verður haldið nákvæmlega. Gert er ráð fyrir að halda frá klúbbhúsi okkar kl: 11:30 stundvíslega. Við ráðgerum að koma til baka um kl: 14:30 en þá verður gestum boðið upp á kaffi og kleinur. Vonumst til að sjá ykkur sem flest og fagna með okkur.

Sturlungar MC

Landsmót bifhjólafólks Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Fimmtudagur, 02. júní 2011 00:45

Landsmót hefur verið haldið ár hvert fyrstu helgina í júlí síðan 1987.
Það eru hins vegar ekki margir sem vita það að fyrsta Landsmót Snigla var haldið í Húsafelli dagana 29. - 31 júní árið 1984. Það mættu mjög fáir á þetta fyrsta Landsmót svo fáir að varla var hægt að deila niður verðlaunapeningunum sem áttu að vera í verðlaun fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar sem keppa átti í. Tilnefndur var meðal annars mesti mótorhjólatöffarinn og fl. á þessu Landsmóti. Það er samdóma álit þeirra sem þarna voru að veðrið var svo gott að ekki var hægt að gera neitt nema að flatmaga í sólinni í sem allra fæstum fötum.
Í lok júní 1987 var svo haldið Landsmót í Húnaveri og var eingöngu ætlað Sniglum, en ef aðrir slæddust á svæðið varð fullgildur Snigill að bera ábyrgð á viðkomandi. Á þetta Landsmót mættu yfir 120 gestir og þótti fjöldinn gífulegur. Á þessu landsmóti var keppt fyrst í Snigli, en það er að fara braut sem er 16 metra löng og 1 og 1/2 metri á breidd á sem lengstum tíma án þess að stíga niður fæti á meðan brautin var ekin. Þessi keppnisgrein er í raun þjóðaríþrótt Snigla og er til skrá yfir besta tíma í braut sem er 1:07 og er methafinn Einar Hestur sett á Landsmóti í Trékyllisvík 1992 og er meðalhraði sigurvegara því 0,886 km á kl.. Einnig var keppt í íþróttum eins og Zippo-mundun, hreðjaglímu, tegundareiptogi og fl. Verðlaun fyrir sigur í hreðjaglímu hefur verið mjög eftirsóttur gripur er nefnist "Pungbindi lýðveldisins" og er leðurpungbindi með harðri skel fyrir hreðjarnar.
Árið eftir var einnig haldið Landsmót í Húnaveri og var gestafjöldi nú tæplega 200. Á þessu Landsmóti var súpan fræga sem matreidd er á öllum Landsmótum fyrst matreidd af Heiðari 10 stórbryta Snigla. Heiðar sá æ síðan um að elda ofan í Snigla sína lands frægu súpu á föstudagskvöldum þar til hann lést 02.07.06. Það er óhætt að fullyrða að enginn hafi matreitt ofan í jafn marga mótorhjólamenn og hann Heiðar.
Næstu ár var verið í Húnaveri, en 1991 var breytt til og Landsmót var haldið á Skógum undir Eyjafjöllum. Á Landsmótinu að Skógum var í fyrsta sinn fenginn aðkeyptur matur ásamt matargerðarmanni til að sjá um hann, en öll árin áður höfðu Sniglar séð sjálfir um að grilla sjálfir Landsmótssteikina. Það var met aðsókn á þetta Landsmót og komu yfir 300 gestir á það mót. Eftir Landsmótið á Skógum hefur Landsmót flakkað um landið og verið nánast í öllum landshlutum nema á norðausturlandi og ekki nær Reykjavík en 100 km.
Á 10 ára afmælinu var Landsmót haldið í Húnaveri og var það fjölmennasta Landsmót sem haldið hefur verið. Á það Landsmót mættu rétt tæplega 500 gestir. Á síðustu 10 árum hafa gestir á Landsmótum verið á bilinu 200-300 í flestum mótunum á misjöfnum stöðum í mis góðum veðrum.

Landsmót bifhjólafólks 2011 verður haldið í Húnaveri fyrstu helginaí Júlí. Að þessu sinni er landsmót í höndum Rafta í Borganesi. www.raftar.is

Síðast uppfært: Sunnudagur, 05. júní 2011 01:43
 
Hugleiðingar á Þorra Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Miðvikudagur, 02. febrúar 2011 16:06

Nú þegar þorrinn er genginn í garð og menn keppast við að raða í sig þeim kræsingum sem honum jafnan fylgja þá er ekki laust við að maður sé farin að ókyrrast og mótorfákurinn farin að urrrrrra í skúrnum.

Á sama tíma lítur maður yfir árið sem leið sem var einstaklega viðburðarríkt ár hjá Sturlungunum. Við byrjuðum árið á því að breyta klúbbnum úr því að vera RC klúbbur og gerast MC. Á sama tíma breyttust merkin okkar. En á þessu ári sem klúbburinn hefur starfað sem MC klúbbur hefur gengið á ýmsu. Vorið byrjaði með látum þegar við misstum 2 félaga okkar í götuna í Borgarfirðinum en þar má segja að betur fór en á horfðist í fyrstu og hafa bæði þeir og fákarnir jafnað sig af sárum sínum. Í byrjun júní fórum við inn í klúbbhúsnæðið okkar á met hraða eins og Sturlungum einum er lagið en vegna samstarfsörðuleika við veðurguðina þurftum við að flytja hátíðarhöld Sturlungadagsins inn í hús og var því rokið til og klúbbhúsinu breytt út því að vera fokhelt í það að verða rúmlega partýhæft á 3 dögum.
Í júlí löggðu Sturlungar land undir fót og geystust á fákum sínum norður í land á slóðir forfeðranna. Við komum okkur upp búðum í höfuðstað norðurlands en á sama tíma stóðu yfir hjóladagar. Við notuðum viku í að krossa fram og aftur um norðurland og má gera ráð fyrir að þetta verði árlegur viðburður í dagatalinu framvegis.
Í ágúst hélum við svo formlegt innflutningspartý þar sem hljómsveitir stigu á stokk og við skemmtum okkur fram undir morgun ásamt fjölda hjólafólks.
Auk alls framangreinds þá höfum við haldið pókerkvöld, jólahlaðborð svo eitthvað sé nefnt og þegar að árið er tekið saman þá verður ekki annað sagt en að þetta hafi verið frábært ár og gefur góðar væntingar til ársins sem nú er rétt hafið.

Nonni V.P 

Innflutningspartý Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Mánudagur, 18. október 2010 19:22

Sturlungar MC ætla að halda innfluttningparý þann 30 þessa mánaðar og skemmta sér og öðru hjólafólki, vinum og velunnurum klúbbsins .
Hljómsveitinn Chernobyl mun stíga á stokk.  Vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Sturlungar MC

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 2