| Saga Sturlunga MC |
| Skrifað af: Ásgeir H. Ásgeirsson |
| Miðvikudagur, 26. maí 2010 15:22 |
|
Sturlungar voru stofnaðir af 12 félögum þann 15. febrúar 2007 og stofnfundurinn var haldinn á Fjörukránni í Hafnarfirði. Í upphafi var lagt upp með það að vinskapur og sterkt bræðralag skyldi einkenna klúbbinn og með það fyrir augum gengu menn út frá því að Sturlungar yrðu aldrei fjölmennur klúbbur.
Á fyrstu 2 árum klúbbsins var töluvert um mannabreytingar eins og oft vill verða þegar um nýjan félagsskap er að ræða. Um mitt ár 2009 fóru þeir 5 stofnfélagar sem eftir voru í klúbbnum að vinna að því markmiði að gera klúbbinn að fullgildum MC klúbb.
Á þorrablóti Sturlunga, nánar tiltekið í febrúar 2010 settu menn svo upp fjórskipt merki eins og hefð er fyrir hjá MC klúbbum. Sturlungar eru einnig aðilli að MC ráði Íslands. Í dag telur klúbburinn 7 fullgilda meðlimi auk 2 Prospecta og 2 hangarounda.
Sturlungar hafa frá upphafi staðið fyrir hinum ýmsu viðburðum, oft á tíðum töluvert stærri og umfangsmeiri en fjöldi klúbbmeðlima gefur til kynna. Þar má m.a. nefna árlegt þorrablót, sturlungadag svo eitthvað sé nefnt. Sturlungadagurinn er haldinn hátíðlegur laugardag fyrir 17.júní ár hvert. Á Sturlungadegi hafa klúbburinn haft það fyrir sið að fara í hópkeyrslu eitthvað út fyrir bæinn en svo þegar kvölda tekur hafa verið haldnir tónleikar á Thorsplani, grillveislur og almenn gleði eins og Sturlungum einum er lagið. Það eru ávallt allir mótorhjólamenn velkomnir á samkomur Sturlunga MC.
Klúbbhúsnæði er eitthvað sem Sturlungar hafa verið að leita fyrir sér með og hver veit nema það fari að detta í gírinn. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 22. júní 2010 22:16 |










