|
Skrifað af: Ásgeir H. Ásgeirsson
|
|
Miðvikudagur, 26. maí 2010 15:26 |

Upphaflega merki klúbbsins hannaði Haukur Halldórsson, Reykjanesgoði árið 2007. Ýmsar tillögur voru bornar á borð en 2 urðu ofan á. Önnur sem bakmerki og hin sem hátíðarmerki Sturlunga.

Bakmerkið var ein heild og saumuð á hvítann grunn. Hátíðamerkið er notað á formleg bréfsefni klúbbsins auk þess var það prentað á fána sem flaggað var við hátíðleg tilefni s.s. Þorrablóti og Sturlungadegi.

Árið 2009 urðu þáttaskil í starfsemi klúbbsins þegar honum var breytt úr því að vera RC eða MMC klúbbur í það að verða MC klúbbur. Í því fólst m.a. að merki klúbbsins yrði að vera 3 skipt. Lögðust menn þá í töluverða vinnu við það að hanna og breyta merkinu og það var svo loks í byrjun febrúar 2010 að Sturlungar MC settu upp núverandi merki.
Athugið !
Stulungar MC hafa einkarétt á notkun merkja þeirra sem hér eru birt. Öll notkun þeirra án samþykkis frá Sturlungum MC er óheimil og eru hörð viðurlög við brotum á skilmálum þessum
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 27. maí 2010 21:08 |