Það styttist í

13 dagar, 12 tímar í:
Hvert við förum veit nú enginn (02.06)

Hellirinn



Saku fyrir þyrsta fólkið

Auglýsing
mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag93
mod_vvisit_counterÍ gær124
mod_vvisit_counterÍ þessari viku1255
mod_vvisit_counterÍ síðustu viku905
mod_vvisit_counterÞessi mánuður2731
mod_vvisit_counterSíðasti mánuður3626
mod_vvisit_counterFrá upphafi85211

We have: 6 guests online
IP talan þín er: 38.107.179.228
Í dag er: 19 maí, 2012

Deila á Facebook

Deildu síðunni með vinum
Uppstillingardagur2 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Föstudagur, 18. maí 2012 00:18

Þökkum fyrir frábæran dag

 

Fjölmargir sóttu okkur heim í dag þegar við héldum Uppstillingardag á uppstigningardag í fyrsta sinn.  Hugmyndin að þessu vaknaði í umræðum á Facebook og í kjölfarið riðum við á vaðið og rigguðum upp uppákomu þar sem fólk fékk tækifæri á því að mæta til þess að eiga viðskipti með hjól og hluti þeim tengdum án aðkomu utanaðkomandi aðila.  Að okkar mati heppnaðist þetta mjög vel og um tíma mátti telja fólk og fáka í hundruðum.  Veðurguðirnir létu sitt ekki eftir liggja og sýndu sínar bestu hliðar (miðað við veðurfarið dagana á undan).  Miðað við viðtökurnar sem við fengum í dag þá má ganga út frá því sem vísu að þetta verði árlegur viðburður á uppstigningardag framvegis en það er ekki síst ykkur sem tókuð þátt í þessu með okkur í dag að þakka.  

 

Sjáumst hress að ári.

 

Síðast uppfært: Föstudagur, 18. maí 2012 00:37
 
uppstillingardagur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Þriðjudagur, 08. maí 2012 01:50

Uppstillingardagur á Uppstigningardegi

045899393086xl

Eftir umræður og pælingar í mörgum hornum facebook kom upp sú hugmynd að halda eins konar sölusýningu, þar sem fólk sem 
vantar að selja mótorhjól eða hefur hug á að fjárfesta í hjóli getur hist, skoðað, rætt málin, keypt og selt hjól. Nú einnig ef áhugi er fyrir eins konar swap-meet fíling þá er það alveg velkomið.

Sturlungar hafa tekið þetta að sér. Við erum með næg bílastæði og nóg pláss.  Dagurinn sem um ræðir er fimmtudagurinn 17.maí (Uppstigningardagur)

Þeir sem hafa hug á að koma með hjól eða hjólatengda hluti eru beðnir að senda email því til staðfestingar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Gert er ráð fyrir að hver og sjái um sitt dót. Sölutilkynningar og afsöl verða á staðnum.
Engin söluþóknun, ekkert aðstöðugjald, ekkert vesen.  Það má kannski minna þá sem eru að selja hjól að gott væri ef veðbókarvottorð lægju fyrir svo hægt væri að klára málið á staðnum.

Allar hjólategundir velkomnar. Heitt verður á könnunni. Samlokur og sitthvað fleirra mönch á vægu verði.
Hlökum til að sjá sem flesta.
Kv.Sturlungar

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. maí 2012 02:00
 
Standari Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Laugardagur, 28. apríl 2012 20:53

Það er alveg ljóst að það vantar ekki öllum standara....

 

 

Maður nokkur hefur stefnt BMW og sætaframleiðandanum Corbin-Pacific fyrir dómstóla. Ákæruatriðið er að maðurinn er haldinn svokallaðri sístöðu reðurs eftir ferð á mótorhjóli sem stóð yfir í fjórar klukkustundir.

Málið er rekið sem einkamál fyrir Hæstarétti Kaliforníu í San Francisco. Í stefnunni kemur fram að stefnandi, Henry Wolf, þróaði með 

sér alvarlegt tilfelli priapisma eftir langt ferðalag á 1993 árgerð BMW mótorhjóls. Í læknisfræði er priapismi heiti sjúkdómsástans sem á íslensku nefnist sístaða reðurs og getur orsakast af völdum sjúkdóms eða áverka í mænu. Þetta veldur því að reður karlmanns rís og hnígur ekki á ný, eins og eðlilegt er.

Wolf kveðst hafa farið í fjögurra klukkustunda ferð á mótorhjólinu í maí 2010. Mjög fljótlega upp frá því kenndi hann til

meinsins. Hann segir formlögun sætisins um að kenna sem hann segir hafa verið „hrygglaga“.

Maðurinn segir að ástand sitt hafi valdið sér tilfinningalegum skaða. Í stefnuskjalinu segir:

 

“Stefnandi þjáist nú af priapisma (sístöðu reðurs), og hefur átt við stöðug vandamál að stríða vegna þess allt frá mótorhjólaferðinni afdrifaríku. Honum er nú fyrirmunað að njóta kynlífs út af þessu sjúkdómsástandi, sem veldur honum umtalsverðu tilfinningalegu og andlegu tjóni.  Stefnandi er örvæntingarfullur og þjáist af streitu vegna þessa. Stefndu, hvor um sig, bera ábyrgð á ástandi stefnandi vegna gallaðrar hönnunar, framleiðslu og/eða ísetningu sætisins á mótorhjóli stefnanda.”

jn2011 122
Síðast uppfært: Sunnudagur, 29. apríl 2012 00:09
 
Hriðjuverk ?? Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Fimmtudagur, 12. apríl 2012 01:35

Maður þarf kannski að fara að gæta sín...

 

....Það er að segja ef maður á ekki að verða stimplaður hriðjuverkamaður í ofanálag.

 

Grein tekin úr Associated Press

 

“Loud pipes save lives” is one of the more contentious philosophies among motorcyclists. Advocates argue louder exhausts make drivers notice motorcyclists better while detractors say the noise pollution leads to stricter anti-motorcycle legislation.

This probably wasn’t what those critics had in mind.

 

Prosecutors in northern Mexico have charged two motorcyclists with terrorism after their exhaust pipes backfired, causing a crowd of people to panic thinking the sound was gunfire. In a country with serious drug violence issues, this was a valid fear for the crowd.

According to the Associated Press, the state has charged Juan Ramon Munguia andEnrique Trevino Rivera with the rather extreme accusations. The incident occurred April 7 as the two were leaving work in San Luis Potosi, Mexico. When the two started their bikes, their engines backfired, spooking a crowd who were there to celebrate an Easter festival. The noise sent hundreds of people stampeding in panic, with several people getting trampled with vendor stalls clogging up the street.

Accounts differ as to whether the loud engine noise was intentional.

 

“There are two versions: They (the motorcyclists) say that is just where they usually warm up their engines,” San Luis Potosi state spokesman Juan Antonio Hernandez told the Associated Press. “But there are witnesses who say they purposely continued to rev their engines , even after people had started to panic.”

The terrorism charges may seem extreme. Part of the problem, officials concede, is the state criminal code lacks lesser charges that would be more appropriate for such a situation. As it is, the two riders face up to 20 years in prison if convicted.

 

The Human Rights Commission has stepped up to defend the two motorcyclists.

“There is possible blame that can be attributed to city authorities who allowed vendors to set up stands in the square without the appropriate controls, which prevented a rapid evacuation,” the commission said in a statement.

“The arrests and charges of terrorism lack any legal basis,” continued the statement. “This commission has evidence that the two workers were leaving work and doing what they do every day, starting up a motorcycle they use as transport.”

The Human Rights Commission also claim the two riders were beaten by police after being taken into custody.

[Source: Associated Press]


Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. apríl 2012 01:46
 
Hlífðarfataskilda tekin út Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Már Guðmundsson   
Miðvikudagur, 28. mars 2012 00:23

Hlífðarfataskyldan felld út úr lögum

"Tekið af vefsvæði sniglar.is skrifað af Njáli Gunnlaugssyni"

Þau gleðitíðindi hafa borist að stefnubreyting hafi orðið hjá löggjafanum í hlífðarfatamálinu. Í nýjustu drögum að umferðarlögum sem birt voru á netinu í kvöld hefur verið horfið frá skilyrðislausri skyldunotkun á hlífðarfatnaði og tekið fullt tillit til athugasemda Snigla þar að lútandi. Tekið skal fram að þetta eru drög frá innanríkisráðuneytinu sem eiga eftir að fara í umræðu hjá Alþingi en það verður að teljast mikill áfangasigur að fá þetta ákvæði út úr drögunum. Svo vitnað sé beint í umsögn um hina umdeildu 75. grein er hér umsögnin um hlífðarfatahlutann:

"Í 1. gr. laga nr. 83/2007 var tveimur nýjum málsliðum bætt við 1. mgr. 72. gr. gildandi laga. Þar er svo fyrir mælt að hver sá sem sé á bifhjóli skuli nota viðurkenndan lágmarkshlífðarfatnað ætlaðan til slíkra nota. Sama sé um þann sem er á hliðarvagni, eftirvagni eða tengitæki bifhjóls. Í almennum athugasemdum greinargerðar með frumvarpi því er varð að lögum nr. 83/2007 er m.a. rakið að Bifhjólasamtökin Sniglarnir hafi barist fyrir umræddri lagabreytingu enda hafi bifhjólum á undanförnum árum fjölgað mjög hér landi sem annars staðar. Með bættu vegakerfi og auknum hraða hafi alvarlegum slysum og banaslysum fjölgað í umferðinni. Við þessu þurfi að bregðast með öllum tiltækum ráðum. Slys á ökumönnum og farþegum geti orðið mjög alvarleg. Vörn sem bifhjól veiti í slysum sé ekki í líkingu við þá vörn sem ökumenn og farþegar bifreiða hljóti af sínum ökutækjum. Þegar bifhjólaslys verði kastist bifhjólafólk nær undantekningarlaust af bifhjólinu og lendi á götunni eða í nánasta umhverfi. Af þessu leiði að hlífðarfatnaður sé mikilvægasti öryggisbúnaður bifhjólafólks og geti skipt sköpum um meiðsli ef slys verður.

Eftir að þessi ákvæði komu inn í gildandi umferðarlög hafa forsvarsmenn bifhjólamanna breytt um stefnu og fært fyrir því rök að lögbundin skylda til að klæðast hlífðarfatnaði við almennan akstur bifhjóla sé í raun óframkvæmanleg og hafa þeir því sett sig upp á móti slíku ákvæði í umferðarlögum. Engu síður er það mat hagsmunaaðila að æskilegt sé að bifhjólamenn klæðist slíkum fatnaði og er stöðugum áróðri haldið uppi af hálfu samtaka bifhjólamanna í þessu skyni. Að þeirra mati eiga önnur sjónarmið hins vegar við um akstur óvarinna ökumanna í atvinnuskyni eða þeirra sem taka þátt í keppnisíþróttum tengdum slíkum tækjum.

Að teknu tilliti til framangreindra röksemda, og þess að við könnun á lagaumhverfi erlendis hefur ekki reynst unnt að finna sambærilega löggjöf í öðrum löndum varðandi skyldubundna notkun hlífðarfatnaðar við akstur bifhjóls, er lagt til að 3. málsl. 1. mgr. 72. gr. núgildandi umferðarlaga verði felldur út og að ekki verði sett fram fortakslaus skylda bifhjólamanna að klæðast viðurkenndum hlífðarfatnaði. Eftir sem áður er gert ráð fyrir í 2. mgr. 76. gr. að ráðherra setji í reglugerð ákvæði um flokkun, gerð og notkun hlífðarfatnaðar ökumanns og farþega bifhjóls, torfærutækis og annars sambærilegs, vélknúins ökutækis."

Hægt er að sjá drögin í heild sinni á þessari slóð:

http://www.althingi.is/altext/140/s/1050.html

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 28. mars 2012 00:31
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 5